Stjórnarskipti
- Stjórn Umf. Samherjar
- 4 minutes ago
- 2 min read
Aðalfundur UMF Samherja 2026 var haldinn fimmtudaginn 26. mars s.l. Má segja að
algjör kúvending hafi orðið á stjórnarskipan, annað árið í röð, hvar fjórir af fimm þeirra
sem sátu í aðalstjórn viku frá hlutverkum sínum. Nú hefur ný stjórn skipað sér í hlutverk
og er mikil og góð orka sem fylgir nýkjörnum stjórnarmeðlimum.
Þeir sem skipa nýja stjórn eru eftirfarandi:
Þorsteinn Ægir Egilsson – Formaður
Óskar Þór Vilhjálmsson – Gjaldkeri
Sigurgeir Sv. Gíslason (stígur úr formanns- og gjaldkerasæti) – Ritari
Vignir Egill Vigfússon – Meðstjórnandi
Erwin van der Werve – Meðstjórnandi
Varamaður stjórnar er Helga Rut Sæmundardóttir.
Aðeins stakur varamaður var kjörinn, þar sem skortur var á frekara framboði. Stjórn
tekur þó innilega og vinsamlega á móti einstaklingum sem kunna að vilja styðja við
starfsemina.
Fundargerð frá aðalfundi má finna hér:

Stjórn UMF Samherja 2026-2027
Frá vinstri – Sigurgeir Sv. Gíslason, Þorsteinn Ægir Egilsson, Óskar Þór Vilhjálmsson, Erwin van der Werve og Vignir Egill Vigfússon.Á myndina vantar Helgu Rut Sæmundardóttur
Fráfarandi stjórn óskar nýkjörnum fulltrúum velfarnaðar í starfi. Mikil trú er lögð á nýmyndaða
forystu félagsins. Á síðasta ári réðst stjórn í ráðningu á framkvæmdastjóra félagsins sem hefur reynst félaginu gífurlega gjöfult og ber þess sterk merki um bæði stækkun og áframhaldandi eflingu starfseminnar.
Góðu starfi framkvæmdastjóra verður haldið áfram með frekari stuðningi frá stjórn en nýkjörnir stjórnarmenn, þeir Óskar og Þorsteinn búa að mikilli og góðri reynslu er
kemur að stjórnarstörfum, hvort sem það er fyrir ungmenna- eða sveitarfélög. Með von um
áframhaldandi bestun á starfseminni okkar, hvar iðkendur spila stærsta og ríkasta þáttinn,
þökkum við í fyrri stjórn kærlega fyrir okkur. Þetta hefur verið lærdómsríkt.
En eins og Óskar segir alltaf, “eina leiðin er áfram og þá er best að stefna bara þangað”.
Áfram Samherjar!
.png)



Comments