top of page
Search

Ungmennafélagið Samherjar óskar eftir að ráða framkvæmdastjóra í 50% starf

Framkvæmdastjóri - Starfssvið og skyldur samkvæmt starfssamningi:

  • Framkvæmdastjóri vinnur eftir ákvörðun stjórnar Umf. Samherja hverju sinni og kemur þeim verkefnum sem stjórn samþykkir í framkvæmd. Hann hefur jafnframt yfirumsjón með starfi félagsins.


Starfslýsing er því ekki tæmandi, sem dæmi:

  • Sér um öll almenn störf á skrifstofu og utanumhald um Abler kerfið, til að mynda setja inn æfingar allra flokka, útbúa greiðsluviðburði og gera tilkynningar á iðkendur í samráði við þjálfara.

  • Hefur yfirumsjón með skipulagi á æfingatöflu, bæði vetur og sumar, í nánu samstarfi við stjórn Umf. Samherja og forstöðumann íþróttamiðstöðvar Eyjafjarðarsveitar.

  • Aðstoðar stjórn Umf. Samherja við ráðningu á þjálfurum fyrir allar íþróttagreinar.

  • Er yfirmaður allra þjálfara yngri flokka.

  • Er tengiliður þjálfara við stjórn.

  • Aðstoðar þjálfara með mál sem snúa að þjálfun og samskiptum við forráðamenn eftir þörfum.

  • Aðstoðar við skipulag mótahalds í samstarfi við viðkomandi þjálfara og foreldraráð.

  • Situr stjórnarfundi stjórnar Umf. Samherja og nefnda/ráða sé þess óskað.

  • Gefur stjórn Umf. Samherja góða skýrslu um framgang mála á hverjum stjórnarfundi og þarf að gæta þess að vinna mál í nánu samstarfi við stjórn hverju sinni.

  • Hefur yfirlit með greiðslum æfingagjalda í samstarfi við stjórn Umf. Samherja.

  • Sér um að leita styrkja fyrir félagið.

  • Hefur yfirumsjón með fjáröflunum félagsins og vinnur í samstarfi við stjórn og foreldraráð.

  • Tekur þátt í stefnumótun fyrir félagið ásamt stjórn.

  • Er ábyrgðaraðili gagnvart sérsamböndum ÍSÍ t.d. KKÍ, FRÍ og KSÍ

  • Er ásamt formanni Umf. Samherja samskiptaaðili við sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar.

  • Önnur verkefni sem stjórn Umf. Samherja ákveður hverju sinni.


Möguleiki er á hærra starfshlutfalli með því að gerast aðalþjálfari í einum eða fleiri flokkum í starfinu.


Hæfniskröfur:

  • Lipurð í samskiptum

  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.

  • Jákvætt og drífandi viðhorf.

  • Hæfni í að koma frá sér skýrum og skilmerkilegum upplýsingum.

  • Góð almenn tölvukunnátta.

  • Reynsla af sportabler er kostur 

  • Menntun eða reynsla á sviði íþrótta er kostur

  • Hreint sakavottorð.


Allar nánari upplýsingar gefur Svanhildur Ósk Ketilsdóttir, formaður stjórnar Umf. Samherja, í síma 864-3085 á milli kl. 10-13 á daginn.


Umsóknir sendist á netfangið samherjar@samherjar.is - Umsóknarfrestur er til 1. apríl.


 
 
 

Recent Posts

See All
Breytingar á tímatöflu

Veturinn fer vel af stað og það er gaman að sjá starfið blómstra og góð mæting er í flesta tíma. Við höfum þó þurft að gera smávægilegar...

 
 
 

Comments


Gert í WIX vefumsjónarkerfinu 2021

  • Facebook
bottom of page