top of page
Search

Stjórnarskipti

Aðalfundur Umf. Samherja var haldinn mánudaginn 10. mars s.l. Þá var kjörin ný stjórn sem nú hefur skipt með sér eftirfarandi verkum:


Sigurgeir Sveinn Gíslason formaður

Harpa Friðriksdóttir gjaldkeri

Kristbjörg Bech ritari

Árdís Eva Skaftadóttir meðstjórnandi

Andrea Þórey Hjaltadóttir meðstjórnandi.


Varamenn í nýrri stjórn eru Erwin van der Werve og Helga Rut Sæmundardóttir.



Stjórn Umf. Samherja 2025-2026  													Á myndina vantar varamennina Erwin van der Werve og Helgu Rut Sæmundardóttur
Stjórn Umf. Samherja 2025-2026 Á myndina vantar varamennina Erwin van der Werve og Helgu Rut Sæmundardóttur

Nú er komið að kveðjustund. Fráfarandi stjórn Umf. Samherja gengur stolt frá borði og færir kyndilinn áfram í hendur nýrrar stjórnar. Síðustu 2 ár hafa verið lærdómsrík, krefjandi en umfram allt skemmtileg. Það hefur verið afskaplega gaman og gefandi að taka þátt í uppbyggingu á ungmennafélaginu okkar allra. Það hefur skipt okkur miklu máli að þið hafið verið tilbúin að taka þátt í starfinu með okkur og mæta á æfingar. Kærar þakkir til allra iðkenda, þjálfara, foreldra og velunnara - án ykkar væri ekkert ungmennafélag.


Fráfarandi stjórn óskar nýkjörinni stjórn velfarnaðar í öllum þeirra störfum.

Áfram Samherjar!


Stjórn Umf. Samherja 2024-2025 													Á myndina vantar Sverri Má Jóhannesson
Stjórn Umf. Samherja 2024-2025 Á myndina vantar Sverri Má Jóhannesson

 
 
 

Recent Posts

See All
Breytingar á tímatöflu

Veturinn fer vel af stað og það er gaman að sjá starfið blómstra og góð mæting er í flesta tíma. Við höfum þó þurft að gera smávægilegar...

 
 
 

Comments


Gert í WIX vefumsjónarkerfinu 2021

  • Facebook
bottom of page