Nú er vorönn formlega hafin hjá Samherjum og um að gera fyrir unga sem aldna að stunda fjölbreyttar íþróttir á vegum félagsins. Eins og sjá má á nýrri stundatöflu er nóg í boði og varla hægt að stunda fjölbreytta hreyfingu með ódýrari hætti. Vakin er athygli á því að æfingagjöld gilda sem opinn aðgöngumiði í allar greinar að vild, bæði hjá börnum og fullorðnum. Slíkur sveigjanleiki er líklega einsdæmi hjá starfandi íþróttafélagi.
Æfingagjöldum hjá Samherjum er mjög stillt í hóf. Félagið greiðir niður æfingagjöldin með styrkjum og fé sem aflað er með sjálfboðastarfi félagsmanna.
Gjöldin á vorönn eru eftirfarandi:
A) Börn og unglingar að 16 ára aldri:
- 10.000 kr á hvert barn á önn.
- Einungis er rukkað eitt gjald fyrir hvert barn, óháð fjölda greina sem barnið stundar.
- Mest er rukkað fyrir tvö systkini, eða að hámarki kr 20.000.
Stjórnin hvetur börn og unglinga til að stunda sem flestar greinar.
B) Fullorðnir:
- 15.000 kr á mann óháð fjölda greina.
- Æfingagjöld geta því mest orðið 50.000 kr á heimili á önn.
Nú á vorönn hófust æfingar í borðtennis fyrir unga sem aldna. Barnaæfingarnar fara fram undir styrkri stjórn Sigurðar Eiríkssonar.
Það er mikilvægt fyrir félagið að sem flestir nýti sér það sem í boði er því að góð þátttaka er forsenda þess að hægt sé að halda úti öflugu íþróttastarfi í Eyjafjarðarsveit.