Sundæfingar falla niður í dag vegna veikinda.
Hittumst hress á fimmtudag.
Kv. Bíbí
Sundæfingar falla niður í dag vegna veikinda.
Hittumst hress á fimmtudag.
Kv. Bíbí
Borðtennisæfingar hafa verið færðar af fimmtudögum yfir á föstudaga og eru því æfingar nú á þriðjudagskvöldum og föstudagskvöldum frá 19 – 22.
Þegar fjölmennt er á æfingar yngri iðkenda er þeim aldursskipt þannig að yngri iðkendurnir æfa milli 19 og 20 og síðan þeir eldri frá 20 – 21.
Æfingar fara fram í Hjartanu í Hrafnagilsskóla.
Nú er vorönn formlega hafin hjá Samherjum og um að gera fyrir unga sem aldna að stunda fjölbreyttar íþróttir á vegum félagsins. Eins og sjá má á nýrri stundatöflu er nóg í boði og varla hægt að stunda fjölbreytta hreyfingu með ódýrari hætti. Vakin er athygli á því að æfingagjöld gilda sem opinn aðgöngumiði í allar greinar að vild, bæði hjá börnum og fullorðnum. Slíkur sveigjanleiki er líklega einsdæmi hjá starfandi íþróttafélagi.
Æfingagjöldum hjá Samherjum er mjög stillt í hóf. Félagið greiðir niður æfingagjöldin með styrkjum og fé sem aflað er með sjálfboðastarfi félagsmanna.
Gjöldin á vorönn eru eftirfarandi:
A) Börn og unglingar að 16 ára aldri:
Stjórnin hvetur börn og unglinga til að stunda sem flestar greinar.
B) Fullorðnir:
Nú á vorönn hófust æfingar í borðtennis fyrir unga sem aldna. Barnaæfingarnar fara fram undir styrkri stjórn Sigurðar Eiríkssonar.
Það er mikilvægt fyrir félagið að sem flestir nýti sér það sem í boði er því að góð þátttaka er forsenda þess að hægt sé að halda úti öflugu íþróttastarfi í Eyjafjarðarsveit.
Nýja æfingatöflu fyrir vorönn má nálgast hér.
Ný grein hefur bæst við og nú er hægt að æfa borðtennis tvisvar í viku undir markvissri þjálfun Sigurðar Eiríkssonar. Athugið að bandí og sund hefur aðeins færst til frá haustönn.
Kveðja, formaður
Bæði sund- og frjásíþróttaæfingar falla niður í dag vegna veðurs.
Þjálfarar
Æfingar sem verið hafa á laugardögum fyrir eldri hópa verða nú á föstudögum frá kl. 13:45 – 15:00.
Bíbí