Komið þið sæl.
Knattspyrnunefnd UMSE hefur ákveðið að halda knattspyrnumót UMSE og Bústólpa á íþróttavellinum á Hrafnagili þriðjudaginn 3. september kl. 17:00
Aðalmarkmið mótsins er að börn og unglingar á svæðinu sem áhuga hafa á fótbolta komi saman, kynnist og skemmti sér.
Stefnt er að því að keppa í eftirfarandi flokkum ef næg þátttaka fæst (blönduð lið):
8. flokkur (Börn fædd 2013 og síðar). 5 manna bolti.
7. flokkur (Börn fædd 2011-2012). 5 manna bolti.
6. flokkur (Börn fædd 2009-2010). 5 manna bolti.
5. flokkur (Börn fædd 2007–2008). 5 manna bolti.
4. flokkur (Börn fædd 2005-2006). 5 manna bolti.
3. flokkur (Börn fædd 2003-2004). 5 manna bolti.
17-18 ára (Börn fædd 2001-2002) 5 manna bolti
Mögulega þarf að setja saman einhverja flokka eftir skráningu.
Til að hægt sé að raða niður leikjum og ganga frá pöntun á viðurkenningum er mikilvægt að skráningar berist í síðasta lagi sunnudaginn 1. september kl. 20 á netfangið 97agust@gmail.com eða á Facebook hjá Ágúst Örn Víðisson.
Gert er ráð fyrir að mótsgjaldið verði ca. 1.000 kr. á hvern þátttakanda. Innifalið í þátttökugjaldi er pizzasneið og svali.