Hið árlega UMSE mót í knattspyrnu á íþróttavöllunum við Hrafnagilsskóla verður haldið miðvikudaginn 26. ágúst nk. kl. 17:00.
Aðalmarkmið mótsins er að börn og unglingar á svæðinu sem áhuga hafa á fótbolta komi saman, kynnist og skemmti sér.
Stefnt er að því að keppa í eftirfarandi flokkum ef næg þátttaka fæst (blönduð lið):
- 8. flokkur (Börn fædd 2009 og síðar). 5 manna bolti.
- 7. flokkur (Börn fædd 2007-2008). 5 manna bolti.
- 6. flokkur (Börn fædd 2005-2006). 5 manna bolti.
- 5. flokkur (Börn fædd 2003-2004). 7 manna bolti.
- 4. flokkur (Börn fædd 2001-2002). 7 manna bolti.
- 3. flokkur (Börn fædd 1999-2000). 7 manna bolti.
Skráningar fara fram hjá Óskari í síma 8692363 eða á netfangið oskar@melgerdi.is.
Síðasti skráningardagur er miðvikudagurinn 19. ágúst.